Signet Invoice

Build Date: 2026.06.05

Build Time: 10:24

Environment: Production

Subenvironment: Production

Image Tag: 2026.05.10

Skilmálar Signet Invoice

Hér á eftir fara skilmálar þeir sem gilda um notkun og aðgang að Signet Invoice. Signet Invoice er kerfi í eigu og rekstri Advania Ísland ehf. („Advania”). Um þjónustu Signet Invoice gilda einnig almennir viðskiptaskilmálar Advania. Skilmálar Signet Invoice teljast sértækir viðskiptaskilmálar gagnvart almennum viðskiptaskilmálum Advania. Almennu viðskiptaskilmála Advania má finna á heimasíðu Advania, advania.is. Um þjónustu Signet Invoice gildir einnig persónuverndarstefna Signet Invoice. Persónuverndarstefnu Signet Invoice má finna á heimasíðu invoice.signet.is

Skilmálar Signet Invoice eru gefnir út þann 21-01-2026 og gilda frá þeim degi.

Advania áskilur sér einhliða rétt til að breyta skilmálum þessum.

Gildissvið og gildistaka

Skilmálar þessir eru sérstakir notendaskilmálar á milli Advania og notanda, og veitir Advania notanda takmarkað leyfi til notkunar á Signet Invoice í samræmi við þá skilmála og skilyrði sem hér eru sett fram.

Skilmálar þessir taka gildi gagnvart áskrifanda og notanda þegar viðkomandi samþykkir skilmála á vefsíðu Signet Invoice þá eða þegar aðili notar kerfið í fyrsta sinn, sá atburður sem fyrr kemur. Ef notandi samþykkir þessa skilmála fyrir hönd lögaðila staðfestir hann að hafi stöðuumboð eða aðra heimild til að skuldbinda lögaðilann og skulu skilmálar þessir þá bæði gilda fyrir lögaðilann og fyrir þann sem aðganginn nýtir.

Um Signet Invoice

Signet Invoice er stöðluð hugbúnaðarlausn sem felst í miðlægu kerfi til flutnings á rafrænum skeytum sem send eru af þeim sem kaupa aðgang að kerfinu. Advania áskilur sér rétt til að ákveða hvaða virkni kerfið býður upp á hverju sinni.

Skilgreiningar

Áskrifendur: Með hugtakinu er átt við einstakling eða lögaðila í áskriftarþjónustu Signet Invoice.
Eigandi skjals: Er sá notandi sem skráir inn upplýsingar í reikningsform og sendir það rafrænt til móttakanda.
Kaupandi: er sá aðili, einstaklingur eða lögaðili, er greiðir fyrir áskrift að kerfinu.
Kerfið: Með hugtakinu er átt við Signet Invoice.
Notandi: Með hugtakinu notandi er átt við hvern þann aðila sem notar kerfið. Heimild til aðgangs er bundin einkvæmu auðkenni notanda. Notandi þarf að vera sjálfráða og fjárráða.
Notkun: Hugtakið hefur þá merkingu sem því er gefið í grein um notkun í skilmálum þessum.
Rafrænt skeyti: Með hugtakinu er átt við tölvulesanleg skjöl, t.d. XML skjöl. Advania er áskilinn réttur til að ákveða hvaða skeytategundir eru gjaldgengar í kerfinu á hverjum tíma.
Seljandi: Advania Ísland ehf., kt. 590269-7199, Guðrúnartúni 10, 105 Reykjavík.
Skilmálar: Með hugtakinu skilmálar er átt við skilmála þessa.

Aðgangur og notendaupplýsingar

Signet Invoice er áskriftarþjónusta og er greitt fyrir hana mánaðarlega, sjá nánar í grein um gjaldtöku. Innskráning í kerfið fer fram með rafrænum skilríkjum.
Aðgangur notenda Signet Invoice takmarkast við skeytamiðlun í gegnum vefsvæðið invoice.signet.is

Notkun

Notandi getur sent hverjum þeim öðrum skeyti sem eru skráðir móttakendur að rafrænum skeytum. Öll notkun kerfisins takmarkast við þær aðgerðir sem eðlilegar og löglegar geta talist, ásamt þeim upplýsingum og þjónustu sem boðið er upp á á hverjum tíma.

Skyldur notanda

Notandi ber ávallt ábyrgð gagnvart seljanda á að skeyti sem hann sendir uppfylli þau skilyrði sem gerð eru hverju sinni til skeyta af viðkomandi umgjörð. Skeyti sem ekki uppfylla þær kröfur kunna t.d. að glatast eða verða send öðrum kaupendum en þeim sem til stóð að senda þau og ber sendandi einn alfarið alla ábyrgð á því.
Notandi ber jafnframt fulla ábyrgð á efnislegu innihaldi skeytanna sem send eru til móttakanda, þar með talið að tryggja fylgni við viðeigandi lög hverju sinni sem og að bera ábyrgð á hvers kyns skuldbindingum í viðskiptalegu tilliti sem af sendingu skeyta kann að leiða.
Seljanda er heimilt að hafa eftirlit með rafrænum skeytum, t.d. til að tryggja rétt form þeirra og leita leiða til að koma í veg fyrir að vandkvæði leiði af skeytum sem ekki eru rétt formuð. Ef sending skeyta fer ekki fram með eðlilegum hætti að mati seljanda hefur hann heimild til að takmarka eða loka fyrir aðgang kaupanda að kerfinu.

Gjald

Kaupandi skal greiða seljanda fyrir aðgang að Signet Invoice invoice.signet.is samkvæmt gildandi gjaldskrá hverju sinni. Fyrir alla aðra þjónustu sem fellur skal kaupandi greiða seljanda sérstaklega, samkvæmt tímagjaldi seljanda.
Kaupandi skal tilgreina greiðslukort sem skal gjaldfæra fyrir mánaðarlegum gjöldum í samræmi við gjaldskrá hverju sinni . Fast mánaðargjald er innheimt í lok mánaðar ásamt notkunargjöldum ef einhver eru, þ.e ef skeytafjöldi fer yfir 30 skeyti á mánuði.
Ef ekki tekst að gjaldfæra á kreditkort útistandandi gjöld á eindaga (það er samanlögð mánaðargjöld og notkunargjöld) öðlast seljandi rétt til að senda kaupanda greiðsluseðil fyrir útistandandi gjöldum. Við slík vanskil reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags . Greiðslu og tilkynningargjald leggst á reikningsupphæð. Þá er seljanda er heimilt að loka fyrir þjónustu til kaupanda 14 dögum eftir að tilkynning um vanefndir hefur verði send honum.
Verð fyrir þær vörur og þjónustu sem samningur um Signet Invoice tekur til taka breytingum miðað við almenna verðskrá verksala.
Áskrifandi getur sagt upp áskriftinni hvenær sem er. Uppsögnin tekur gildi um mánaðamót eftir að hún berst. Hafi áskrift ekki verið sagt upp fyrir lok áskriftartímabils framlengist áskriftin sjálfkrafa um annað áskriftartímabil.

Þjónusta við notendur

Notendur geta sent fyrirspurnir á netfangið signet@signet.is en einnig er bent er á Spurt og Svarað á heimasíðu Signet Invoice (invoice.signet.is).

Ábyrgðartakmarkanir og afmörkun skaðabótaskyldu

Minniháttar gallar sem kunna að koma upp í hugbúnaðinum en trufla ekki Signet Invoice eða virkni þess á alvarlegan hátt eða um verulegan tíma teljast ekki fela í sér vanefnd af hálfu Advania á samningi þessum.
Advania ábyrgist gagnvart kaupanda að hafa fulla ráðstöfunarheimild yfir því sem Advania leggur til samkvæmt samningnum. Advania ber hins vegar enga ábyrgð á göllum eða bilunum, hverju nafni sem slíkt nefnist, í hugbúnaði, vélbúnaði, netkerfum eða öðru sem lögð eru til af kaupanda eða þriðja aðila.
Kaupandi ábyrgist gagnvart Advania að hann hefur fulla ráðstöfunarheimild yfir þeim rafrænu skeytum sem hann nýtir Signet Invoice til að senda. Kaupandi ber gagnvart Advania ábyrgð á hverjum þeim afleiðingum sem verða af annarri notkun kaupanda á Signet Invoice en þeirri sem er í samræmi við skilmála þessa og telja verður eðlilega og sanngjarna. Kaupandi skuldbindur sig til að halda Advania skaðlausu af hverjum þeim kröfum sem beint er að Advania og tengjast rafrænum skeytum kaupanda sjálfs.
Um ábyrgð Advania sem milligönguaðila í rafrænum viðskiptum gilda ákvæði laga um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, nú V. kafla laga nr. 30/2002.
Bótaábyrgð Advania er bundin því skilyrði að beint og ótvírætt tjón kaupanda megi rekja til mistaka og gáleysis Advania eða starfsfólks þess. Advania ábyrgist ekki tjón kaupanda eða skráðra notenda á þeirra vegum, t.d. viðskiptavina eða starfsfólks, sem verður við það að aðrir komast yfir aðgang að eða misnota Skeytamiðlun Advania, eða önnur kerfi tengd Advania, eða upplýsingar í slíkum kerfum. Bótaábyrgð Advania takmarkast við jafnvirði þeirrar þóknunar sem kaupandi hefur sannanlega greitt til Advania fyrir þjónustuna sem tjónið tengist á síðustu þremur mánuðum fyrir það atvik sem orsakaði umrætt tjón.

Hugverkaréttindi

Allt innihald Signet Invoice, þar með talið útlitshönnun (t.d. texti, grafík, myndir, vörumerki), hugbúnaður, ritstýrt efni, tilkynningar og annað efni er varið samkvæmt höfundarréttar- og vörumerkjalögum á Íslandi og annars staðar. Öll dreifing, endurútgáfa eða rafræn afritun af höfundar- og vörumerkjavörðu efni Signet, hvort heldur sem er að hluta til eða heild, er með öllu óheimil.

Framsal

Advania er heimilt að framselja réttindi sín og skyldur undir þessum samningi. Slíkt á ekki við um notanda, en notanda er ekki undir neinum kringumstæðum heimilt að leyfa öðrum aðilum afnot af aðgangi sínum.

Breytingar á skilmálum

Advania áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum og munu breytingar verða tilkynntar notendum við næstu innskráningu eftir að breytingarnar taka í gildi. Ef notandi kýs að samþykkja ekki breytta skilmála mun notandi ekki lengur geta skráð sig inn á Signet.

Lög og varnarþing

Skilmálar þessir lúta eingöngu íslenskum lögum. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða skilmálanna.
Ágreining um skilmála þessa skulu Advania og viðskiptavinur leitast við að leysa með samkomulagi. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Almennir viðskiptaskilmálar Advania

Um önnur atriði en fjallað er um í þessum skilmálum fer samkvæmt almennum viðskiptaskilmálum Advania sem finna má á advania.is/skilmalar

An error has occurred. This application may no longer respond until reloaded. An unhandled exception has occurred. See browser dev tools for details. Reload 🗙